
Skilvirki leiðtoginn
Glænýtt námskeið!
Fyrir þá vilja ná meiri skilvirkni í lífi og starfi með því að nota heildræna umbótahugsun sem fyrirtæki hafa verið að nýta sér í fjölmörg ár.
Meðal þess sem kennt er:
* Stefnumótun – hvað er mikilvægt fyrir þig, fjölskylduna eða fyrirtækið
* Jafnvægis demanturinn og lífshjólið
* Einföldum og bætum nærumhverfið með 5S aðferðafræðinni
* Betri yfirsýn yfir verkefni og aðgerðir með töflum og öðrum skipulags verkfærum
* Forgangsröðun fyrir hámarks skilvirkni – vinnum að réttum verkefnum ekki hraðar
* Hagnýtar æfingar í núvitund til þess að minnka streitu
Leiðbeinendur
Maríanna Magnúsdóttir og Viktoría Jensdóttir eru báðar verkfræðingar og hafa verið að kenna, veita ráðgjöf og nota umbótahugsun í lífi og starfi í yfir 15 ár. Þær brenna fyrir því að kenna fyrirtækjum og einstaklingum hvernig er hægt að ná árangri í takt við þá stefnu sem þau hafa sett sér.


Næstu námskeið
Mikil sjálfsvinna og greining er á námskeiðinu. Í lok námskeiðs er lagt upp með að þátttakendur hafi öðlast ný viðhorf gagnvart umbótahugsun ásamt fjölda tóla og tækja sem hægt er að nýta strax í einkalífi eða starfi.
Kennt er í tveimur lotum með heimaverkefni á milli lota.
Næsta námskeið verður auglýst síðar
Áhugasamir geta haft samband við marianna@improvement.is